Veftré Print page English

Sendiherra Panama


Forseti á fund með nýjum sendiherra Panama, frú Ana Irena Delgado, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um reynsluna af Panamaskurðinum og þær breytingar sem hugsanlega verða á alþjóðlegum siglingum þegar norðurleiðirnar opnast sem og hlutverk Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar IMO. Þá var einnig fjallað um stöðu mála í Mið-Ameríku, samskipti einstakra landa og stjórnmálalegan og efnahagslegan stöðugleika.

 

ana_delgado