Veftré Print page English

Íþróttasamband fatlaðra


Forseti sækir setningu þings Íþróttasambands fatlaðra og flytur ávarp; hann óskaði sambandinu til hamingju með glæsilegan árangur á heimsmótinu í London og þakkaði framlag þess á undanförnum áratugum til að auka skilning þjóðarinnar á getu og hæfileikum fólks þrátt fyrir fötlun. Íþróttastarf fatlaðra hefði eflt samhug landsmanna og aukið skilning okkar á samhjálp, hæfileikum allra til að ná árangri. Vefur Íþróttasambands fatlaðra.