Veftré Print page English

Erlendir blaðamenn á jarðhitaráðstefnu


Forseti ræðir við hóp erlendra blaðamanna sem sækja jarðhitaráðstefnuna sem haldin er í Hörpu. Fjallað var um þátt jarðhitans í þróun atvinnulífs og lífskjara á Íslandi, fjölþætta nýtingu hans, hvernig vísindi og tækni sköpuðu grundvöll að nýjum fyrirtækjum þar sem jarðhitanýting væri lykilatriði. Þá var einnig rætt um nýtingu jarðhita í þágu matvælaframleiðslu, bæði á sviði ylræktar og þurrkunar matvæla.