Veftré Print page English

Samvinna við Hull


Forseti á fund með borgarstjóra Hull og sendinefnd hans sem heimsækja Ísland til að efla samvinnu borgarinnar og svæðisins þar í grennd í Norður-Englandi við stjórnvöld á Íslandi, m.a. forsetaembættið og Reykjavíkurborg, og einnig til að styrkja starfsemi íslenskra fyrirtækja á svæðinu. Bauð borgarstjóri forseta að heimsækja Hull síðar á þessu ári og taka þátt í fjölmörgum viðburðum sem þar eru á döfinni.