Veftré Print page English

Ræðismenn í Frakklandi


Forseti situr hádegisverð sem sendiherra Íslands í Frakklandi, Berglind Ásgeirsdóttir, heldur fyrir ræðismenn Íslands í Frakklandi og fleira áhrifafólk í samskiptum Íslands og Frakklands. Rætt var um jákvæða stöðu Íslands í augum Frakka, fjölgun franskra ferðamanna og víðtæk samskipti á sviði menningar og vísinda. Myndir (RAX).