Veftré Print page English

Íslenski þekkingardagurinn


Forseti afhendir þekkingarverðlaun Félags Viðskipta- og hagfræðinga og heiðursviðurkenningu til viðskiptafræðings ársins. Verðlaunaafhendingin fór fram á Íslenska þekkingardeginum að lokinni ráðstefnu um þróun ferðaþjónustu. Þrjú fyrirtæki voru tilnefnd til verðlaunanna, Icelandair, TrueNorth og Bláa lónið sem hlaut verðlaunin. Það var Katrín Olga Jóhannesdóttir, stjórnarformaður Já upplýsingaveitna, sem hlaut heiðursverðlaunin.