Veftré Print page English

Glíman við Dróma


Forseti á fund með hópi einstaklinga sem lýsa glímu sinni og hundruða annarra við slitastjórn Dróma, skorti á jafnræði í meðferð lána einstaklinga og fjölskyldna í kjölfar bankahrunsins sem og margvíslegum erfiðleikum í viðskiptum við slitastjórn Dróma sem heldur til streitu óhagstæðari kjörum en gilt hafa hjá öðrum fjármálastofnunum. Einnig var fjallað um þá hættulegu þróun að stjórnstofnunum reynist ekki unnt að taka á slíkum vanda á grundvelli jafnræðis þegnanna og venjulegt fólk sé neytt til þess að fara kostnaðarsama dómstólaleið sem mörgum heimilum er fjárhagslega ofviða.