Veftré Print page English

Samráðsvettvangur um Norðurslóðir. Fundir


Forseti á fleiri fundi með Alice Rogoff, útgefanda Alaska Dispatch og stjórnanda Arctic Imperative ráðstefnunnar í Alaska, og samstarfsfólki hennar um skipulagningu samráðsvettvangs um málefni Norðurslóða. Viðræðurnar voru framhald af fundi í gær og fyrri viðræðum á undanförnum mánuðum um þörfina á slíkum samráðsvettvangi samtaka, sérfræðinga og hinna fjölmörgu aðila sem láta málefni Norðurslóða til sín taka.