Veftré Print page English

UT verðlaun SKÝ


Forseti afhendir upplýsingatækniverðlaun Skýrslutæknifélags Íslands á upplýsingatæknimessu sem haldin er í Hörpu. Verðlaunin hlaut Hilmar Veigar Pétusson, framkvæmdastjóri CCP, og í ávarpi þakkaði forseti honum frumkvæði og forystu sem sýnt hefði á áhrifaríkan hátt hvað íslensk nýsköpunarfyrirtæki geta náð langt á þessu sviði.