Veftré Print page English

Þjálfun jöklafræðinga Himalajasvæðisins


Forseti á fund með Helga Björnssyni, Þorsteini Þorsteinssyni og Dagfinni Sveinbjörnssyni um þjálfun indverskra jöklafræðinga á Íslandi en fyrstu nemendurnir dvöldu hér í fyrra, og um samstarf sérfræðinga á Himalajasvæðinu og alþjóðlegra fræðimanna um rannsóknir á jöklum Himalajasvæðisins. Ráðstefna um það efni var haldin á Íslandi fyrir rúmu ári síðan í boði forseta og Háskóla Íslands og sú næsta verður í apríl á Indlandi.