Afmæli Samhjálpar
Forseti sækir afmælishátíð Samhjálpar í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá stofnun hennar. Í ávarpi þakkaði forseti Samhjálp fyrir fórnfúst starf í þágu velferðar þeirra sem eiga ekki vísan samastað að kvöldi eða máltíðir að degi. Þrátt fyrir samstöðu þjóðarinnar um velferð allra hefur Samhjálp þjónað þeim sem utangarðs eru. Forseti færði Samhjálp því þakkir þjóðarinnar og óskaði öllum aðstandendum og starfsfóliki heilla á komandi árum.