Veftré Print page English

Icesave og EFTA dómstóllinn


Forseti á fund með Tim Ward og Kristjáni Andra Stefánssyni úr málflutningshópi Íslands um niðurstöður EFTA dómstólsins í Icesave málinu, sterkan málstað Íslands, afleiðingar fyrir umræður og stefnumótun innan Evrópusambandsins og á vettvangi alþjóðlegs fjármálasamstarfs. Einnig var rætt um mikilvægi hinnar lýðræðislegu samstöðu, hreyfingarnar sem kröfðust þjóðaratkvæðagreiðslu og hvernig Icesave hafi í hugum fólks víða í Evrópu og annars staðar í veröldinni orðið brennidepill glímunnar milli hagsmuna fjármálamarkaðar annars vegar og lýðræðislegs vilja og réttar fólksins hins vegar. Niðurstaðan væri sigur fyrir íslensku þjóðina og lýðræðið í landinu. Mynd.