Veftré Print page English

Vinnuhópur WEF í málefnum Norðurslóða


Forseti á fund með fulltrúum sérstaks vinnuhóps á vegum Alþjóða efnahagsþingsins, World Economic Forum, sem settur hefur verið upp að fjalla ítarlega um málefni Norðurslóða, breytingar á loftslagi, nýtingu auðlinda og samvinnu fjölmargra, ólíkra aðila sem í vaxandi mæli vilja láta til sín taka á Norðurslóðum. Vinnuhópurinn hélt sinn fyrsta fund í Dubai fyrir nokkrum vikum og mun á þessu ári vinna að ítarlegri efnisöflun.