Veftré Print page English

DLD ráðstefnan


Forseti sækir DLD ráðstefnuna, Digital-Life-Design, sem fjallar um nýja strauma í tækni, menningu og þjóðfélagsháttum. Ráðstefnan er haldin í München og sækir hana fjöldi forystumanna, sérfræðinga og hugsuða á sviði upplýsingatækni, lýðræðis, menningar, lista, viðskipta, heilbrigðis og lífshátta. Loftslagsbreytingar, ofsaveður og bráðnun íss á Norðurslóðum eru einnig meðal umræðuefna og tekur forseti þátt í pallborðsumræðum um þau efni.