Veftré Print page English

Heillaóskir á Suðurpólinn


Forseti sendir Vilborgu Örnu Gissurardóttur eftirfarandi heillaóskir:

"Vilborg Arna Gissurardóttir, Suðurskautinu.

Við Dorrit óskum þér til hamingju með einstakt afrek, árangur einbeitni, kjarks og þjálfunar. Íslendingar samgleðjast þér innilega; erum stolt og glöð. Þú ert ungu fólki frábær fyrirmynd og ferð þín vekur okkur öll vonandi til aukinnar vitundar um mikilvægi heimskautanna fyrir loftslag jarðar og framtíðarheill mannkyns." Fréttatilkynning.