Ungir orkuleiðtogar
Forseti flytur ræðu og svarar fyrirspurnum á málþingi ungra leiðtoga á sviði orku- og umhverfismála (Young Future Energy Leaders) sem haldið er í Abu Dhabi í tengslum við heimsþing hreinnar orku. Forseti lýsti reynslu Íslendinga af nýtingu jarðhita, hagnýtingu orkunnar til raforkuframleiðslu, húshitunar, ylræktar og í þágu ferðaþjónustu og aukinna lífsgæða. Málþingið sækir ungt fólk frá löndum í Asíu, Mið-Austurlöndum og Evrópu. Myndir.