Tilnefningar til orkuverðlauna
Forseti afhendir ásamt Dr. Sultan Al Jaber stjórnarformanni Zayed Future Energy Prize skólum, almannasamtökum og nýsköpunarfyrirtækjum viðurkenningarskjöl fyrir að hafa verið tilnefnd til orkuverðlaunanna. Verðlaunahafar voru tilkynntir á hátíðarsamkomu í gærkvöldi. Viðurkenningarskjölin voru afhent á sýningarsvæði orkuverðlaunanna í tengslum við heimsþingið um hreina orku og vatnsbúskap veraldar.