Veftré Print page English

Íslendingasamfélagið í Utah


Forseti á fund með Daníel Leifson frá Utah sem þátt tók í Snorraverkefninu fyrir nokkrum árum. Rætt var um aukin tengsl og samskipti við fólk af íslenskum ættum í Utah og öðrum svæðum í Bandaríkjunum og Kanada, samstarf háskóla og nemendaskipti, tengsl listafólks og möguleika sem kvikmyndagerð skapar, bæði nýjar íslenskar kvikmyndir og fjöldi bandarískra kvikmynda sem teknar hafa verið á Íslandi.