Veftré Print page English

Samstarf við Indland


Forseti á fund með sendiherra Íslands á Indlandi, Guðmundi Eiríkssyni, um samstarf landanna, einkum á sviði nýtingar jarðhita, jöklarannsókna og upplýsingatækni. Fyrirhuguð er ráðstefna sérfræðinga í jöklum Himalajasvæðisins í framhaldi af ráðstefnu sem haldin var á Íslandi fyrir rúmu ári síðan í boði Háskóla Íslands og forseta.