Veftré Print page English

Íslensk erfðagreining


Forseti á fund með Kára Stefánssyni og forsvarsmönnum Amgen lyfjafyrirtækisins um kaup þess á Íslenskri erfðagreiningu, framtíð rannsóknastarfsemi á hennar vegum og mikilvægi þess að Ísland verði áfram vettvangur mikilvægra rannsókna á þessu sviði. Einnig var rætt um áætlanir fyrirtækisins og þær vonir sem það bindur við starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar enda hafi sá árangur sem fyrirtækið hafi náð á undanförnum árum skapað því algjöra sérstöðu hvað snertir rannsóknir í mannerfðafræði og framlag á þeim vettvangi til þróunar lyfja og lækninga.