Veftré Print page English

Samstarf á Norðurslóðum. Siglingaleiðir


Forseti á fund með Felix H. Tschudi sem hefur beitt sér fyrir auknu samstarfi á Norðurslóðum með sérstakri áherslu á nauðsyn þess að skipuleggja nýjar siglingaleiðir og efla tengsl forystusveita í atvinnulífi, bæði í ríkjum Norðurslóða og í öðrum heimshlutum. Forseti gerði grein fyrir hugmyndum um nýjan samráðs- og samstarfsvettvang sem tengt gæti saman þá fjölmörgu aðila sem nú fjalla um málefni Norðurslóða.