Veftré Print page English

Sauðfjárbændur. Styrktartónleikar


Forseti sækir tónleika í Hofi á Akureyri sem efnt var til í tengslum við landssöfnun til styrktar sauðfjárbændum norðanlands sem urðu fyrir miklum búsifjum og tjóni í hamfaraveðrinu í september. Forseti flutti ávarp þar sem hann ítrekaði samstöðu landsmanna með sauðfjárbændum enda hefðu Íslendingar jafnan staðið við bakið á þeim sem þyrftu að glíma við afleiðingar hamfara í náttúrunni.