Opnun ATMO
Forseti er viðstaddur opnun ATMO þar sem um sextíu íslenskir hönnuðir kynna og selja fatnað, húsmuni og aðrar afurðir íslenskrar hönnunar. Markmið ATMO er að auðvelda aðgang að íslenskri hönnun, auka veg hennar og virðingu og aðstoða íslenska hönnuði við að koma vörum sínum á framfæri.