Veftré Print page English

Heyrnarhjálp 75 ára


Forseti flytur ávarp í afmælishófi Heyrnarhjálpar sem haldið er í tilefni af 75 ára afmæli félagsins. Í ávarpinu þakkaði forseti Heyrnarhjálp fyrir brautryðjandastarf og forystu í fræðslumálum og rakti hve frábrugðið samfélagið var okkar tímum á fyrstu áratugum félagsins; nú væri fjölþætt aðstoð látin í té, m.a. á grundvelli þeirra tækninýjunga sem orðið hafa á undanförnum árum.