Veftré Print page English

Slysavarnafélagið Landsbjörg. Neyðarkallinn


Forseti ýtir úr vör í Smáralind sölu á Neyðarkallinum sem Slysavarnafélagið Landsbjörg selur þessa dagana um allt land í fjáröflunarskyni. Eftir að hafa keypt nokkra Neyðarkalla tóku forsetahjónin ásamt félögum Landsbjargar þátt í sölu Neyðarkallsins í Smáralind.