Veftré Print page English

Sendiherra Brasilíu


Forseti á fund með nýjum sendiherra Brasilíu á Íslandi, hr. Flávio Helmold Macieira, sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um vaxandi ítök Brasilíu í efnahagslífi veraldar, árangur í nýtingu hreinnar orku og jafnframt mikilvægi Norðurslóða fyrir nýtingu auðlinda, siglinga og samskipti á þessari nýju öld. Jafnframt var minnst á íslensku landnemana sem settust að í Brasilíu en hópur afkomenda þeirra heimsótti Ísland fyrir nokkrum árum.

 

sa_thridji_i_dag1