Veftré Print page English

Sendiherra Ekvadors


Forseti á fund með nýjum sendiherra Ekvadors á Íslandi, hr. Mario Aníbal Guerrero Murgueytio, sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um áhuga á samstarfi við Ísland á sviði jarðhitanýtingar en mikil tækifæri eru á þeim vettvangi í Ekvador. Þá var fjallað um þróun efnahagslífs, einkum eftir að landið tók upp Bandaríkjadal sem mynt, sem og möguleika á samskiptum á sviði menningar og lista.

 

sa_annar_i_dag1