Alþjóðabankinn og jarðhiti
Forseti á fund með Vijay Iyer frá Alþjóðabankanum um nýja áætlun bankans um nýtingu jarðhita í þróunarlöndum en hún er unnin í samvinnu við Íslendinga og með fjárhagslegum stuðningi víða að. Alþjóðabankinn hyggst nýta reynslu og kunnáttu Íslendinga á sviði jarðhita til að hvetja þróunarlönd í Asíu, Afríku og Suður-Ameríku til að byggja á grundvelli jarðhita í senn framþróun og ný atvinnutækifæri.