Veftré Print page English

Papúa Nýja Gínea


Forseti á fund með sendinefnd frá Papúu Nýju Gíneu og fulltrúum Reykjavík Geothermal um nýtingu jarðhita í landinu og þau tækifæri til fjölþættrar efnahagslegrar þróunar sem hún gæti falið í sér. Jafnframt var fjallað um hvernig þróun Íslands frá fátækt fyrri tíðar, reynsla þjóðarinnar við lausn margvíslegra vandamála og glíman við náttúruöflin geti reynst smærri þróunarlöndum uppspretta lærdóms og hvatningar.