Veftré Print page English

Orkusparnaður í skipum


Forseti á fund með stjórnendum Marorku sem unnið hefur hugbúnað til að stuðla að orkusparnaði og hagkvæmri orkunýtingu í skipum. Marorka á í viðræðum við stærsta skipafélag Kína, Cosco, en samvinna Íslands og Kína á þessu sviði var dagskrárefni fundar forseta með forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, í Abu Dhabi fyrr á þessu ári. Einnig var rætt um nýtingu búnaðarins á vegum annarra áhrifaríkra skipafélaga.