Veftré Print page English

Heillaóskir til landsliða í hópfimleikum


Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur í morgun, sunnudaginn 21. október 2012, sent landsliðum stúlkna og kvenna í hópfimleikum eftirfarandi heillaóskir:

„Við Dorrit óskum ykkur hjartanlega til hamingju með glæsilegan árangur. Gullverðlaun ykkar bætast nú á afrekaskrá fremsta íþróttafólks landsins. Þessi árangur er Íslandi til sóma enda samgleðst þjóðin ykkur innilega.“