Veftré Print page English

Dómnefnd Zayed verðlaunanna


Forseti stjórnar fundi dómnefndar Zayed verðlaunanna, The Zayed Future Energy Prize, sem haldinn er í Abu Dhabi. Verðlaunin eru veitt fyrir frumkvæði og forystu í nýtingu hreinnar orku og framlag til að auka sjálfbærni í veröldinni. Verðlaunaféð, sem samtals nemur fjórum milljónum Bandaríkjadala, skiptist á milli verðlaunahafa í fjórum flokkum: heiðursverðlaun til einstaklings vegna langrar þjónustu við framangreind markmið; verðlaun til almannasamtaka, baráttusamtaka og fræðastofnana; verðlaun til lítilla eða meðalstórra fyrirtækja sem rutt hafa nýjar brautir á þessu sviði; og verðlaun til unglingaskóla vegna verkefna í þágu sjálfbærni og hreinnar orku en valinn er einn skóli frá hverri heimsálfu. Auk þess hlýtur alþjóðlegt fyrirtæki sérstaka viðurkenningu fyrir framlag sitt á þessu sviði. Heimasíða verðlaunanna.