Veftré Print page English

Sky News Arabia


Forseti heimsækir höfuðstöðvar sjónvarpsstöðvarinnar Sky News Arabia sem tók til starfa fyrr á þessu ári og er þegar orðin meðal helstu sjónvarpsmiðla í Arabaheiminum. Á hennar vegum starfa nú þegar rúmlega 400 fréttamenn og er sjónvarpsstöðin samstarfsverkefni Sky fréttastöðvarinnar og Abu Dhabi. Markmiðið er að stuðla að traustri og alhliða fréttamennsku og dreifingu upplýsinga um viðburði víða um heim á arabísku.