Veftré Print page English

Nýsköpun á Íslandi og Nýja Sjálandi


Forseti á fund með Nýsjálendingnum Matt Yallop sem starfað hefur við nýsköpun og sprotafyrirtæki í heimalandi sínu og dvalið á Íslandi undanfarnar vikur til að kynna sér nýsköpun og sprotafyrirtæki. Rætt var um tækifæri smárra þjóða til að vera uppspretta nýjunga í upplýsingatækni og á fleiri sviðum og fjallaði hann um ýmsar hliðstæður milli landanna og hvað Íslendingar og Nýsjálendingar gætu lært hvorir af öðrum.