Veftré Print page English

Glíma einstaklinga við lánastofnanir, stjórnsýslu og dómskerfi


Forseti á fund með Sturlu Jónssyni og Arngrími Pálmasyni þar sem þeir röktu reynslu sína og annarra einstaklinga af því að leita réttar síns í glímunni við lánastofnanir, stjórnsýslu og dómskerfi. Þeir hafa átt fjölda funda með fulltrúum lánastofnana og opinberum aðilum þar sem gildi lánasamninga og færslur í veðbókum hafa verið á dagskrá.