Veftré Print page English

Sendiherra Eistlands


Forseti á fund með nýjum sendiherra Eistlands, hr. Simmu Tiik, sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um nána samvinnu landanna og þátttöku forseta í hátíðahöldum í Tallinn á síðasta ári í tilefni af sjálfstæðisafmæli Eistlands. Einnig var fjallað um glímu Eista við fjármálakreppuna og tengslin við önnur ríki við Eystrasalt sem og samvinnu Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna.

 

Sendiherra Eistlands gagnvart Íslandi, Simmu Tiik.