Veftré Print page English

Forseti FIFA


Forseti á fund með forseta FIFA, Joseph S. Blatter, sendinefnd hans og stjórnendum Knattspyrnusambands Íslands um þróun íþróttarinnar á Íslandi, framlag hennar til samfélagsins, einstakra byggðarlaga og þjóðarvitundar. Einnig var rætt um mikilvægi þjálfunar yngstu aldursflokka en FIFA hefur lagt æ meiri áherslu á þann þátt. Forseti FIFA lýsti síðan stefnu sinni um eflingu íþróttarinnar í öðrum heimsálfum, sérstaklega í Asíu og Afríku enda gæti knattspyrna eflt getu og sjálfstraust þjóða sem og stuðlað að alþjóðlegri vitund og samstöðu.