Veftré Print page English

Afmælishátíð SÁÁ


Forseti flytur ávarp sem sýnt var á afmælishátíð SÁÁ í Háskólabíói. Í því flutti forseti þakkir þjóðarinnar til SÁÁ sem bjargað hefði þúsundum Íslendinga og glætt líf einstaklinga og fjölskyldna nýrri von. Mikilvægt væri að halda áfram á sömu braut því enn skapaði neysla á áfengi og fíkniefnum gríðarlegan vanda sem m.a. kæmi niður á börnum og fjölskyldum. Ávarp forseta.