Veftré Print page English

Afmæli Halaleikhópsins


Forseti er viðstaddur hátíðarhöld í Félagsheimili Sjálfsbjargar í tilefni afmælis Halaleikhópsins. Forseti flutti ávarp þar sem hann þakkaði leikhópnum ekki aðeins fyrir góða skemmtun á undanförnum árum heldur einnig fyrir að hafa breytt viðhorfum landsmanna til getu þeirra sem fatlaðir eru. Forseti nefndi einnig nokkrar leiksýningar hópsins sem væru honum sérstaklega minnisstæðar.