Veftré Print page English

Afmæli SÁÁ. Ný herferð


Forseti á fund með Gunnari Smára Egilssyni formanni S.Á.Á. um þörfina á nýrri herferð til að tryggja velferð þeirra þúsunda sem á einn eða annan hátt glíma við afleiðingar áfengisvandans. Þrátt fyrir mikinn árangur meðferða á undanförnum áratugum eru nokkrar þúsundir Íslendinga sem þurfa sérstaka langvarandi aðstoð. Í tengslum við afmælisár S.Á.Á. er rætt um sérstaka herferð í þessu skyni.