Veftré Print page English

Forseti finnska þingsins


Forseti á fund með forseta finnska þingsins, Eero Heinäluoma, sem heimsækir Ísland í boði Alþingis. Rætt var um vaxandi samvinnu landanna og aukið mikilvægi Norðurslóða, þörfina á að þingmenn ríkja á Norðurslóðum stuðli að lýðræðislegum grundvelli ákvarðanatöku með nánara samstarfi. Einnig var fjallað um Evrópusambandið og ólíka afstöðu einstakra Norðurlandaþjóða til aðildar að því. Mynd.