Veftré Print page English

Lækningatæki. Lionshreyfingin


Forseti er viðstaddur þegar Lionshreyfingin afhendir Landspítalanum-Háskólasjúkrahúsi tæki til skurðaðgerða á augum. Fjársöfnun til gjafarinnar var í tilefni af afmæli hreyfingarinnar á Íslandi og einnig bárust framlög úr alþjóðasjóðum Lionshreyfingarinnar. Forseti gangsetti tækið og flutti stutt ávarp við athöfnina þar sem hann þakkaði Lionshreyfingunni höfðinglega gjöf.