Veftré Print page English

Ólympíumót fatlaðra. Móttaka


Forseti heiðrar í dag íslensku þátttakendurna á Ólympíumóti fatlaðra í London með sérstakri móttöku á Bessastöðum. Íþróttafólki og fjölskyldum þeirra, þjálfurum og öðrum starfsmönnum, sem voru á Ólympíumótinu, er boðið til móttökunnar ásamt forystu Íþróttasambands fatlaðra og ÍSÍ, svo og þeim sem áður hafa unnið til gullverðlauna á Ólympíumóti fatlaðra; einnig fulltrúum styrktaraðila og fréttamönnum og ljósmyndurum sem viðstaddir voru Ólympíumótið. Mótttakan hefst kl. 16:00.