Elena Poniatowska
Forseti á fund með mexíkóska rithöfundinum Elena Poniatowska ásamt þýðanda og skipuleggjendum málþings um rithöfundinn en bók hennar, Jesúsa, kemur út á íslensku um þessar mundir. Rætt var um menningu og stjórnmál í Mexíkó, glímuna við margvísleg vandamál, arfleifðina frá tímum Spánverja og baráttuna gegn glæpum og spillingu.