Veftré Print page English

Ólympíumót fatlaðra


Forseti sækir lokadaga Ólympíumóts fatlaðra sem haldnir eru í London. Fyrir hádegi í dag, föstudaginn 7. september, fylgist hann með keppni í frjálsum íþróttum þar sem Helgi Sveinsson er meðal keppenda. Forseti mun einnig afhenda verðlaun og eftir hádegið heimsækja forsetahjónin Ólympíuþorpið og hitta íslensku keppendurna, þjálfara og forystumenn Íþróttasambands fatlaðra. Þá verður forseti viðstaddur lokahátíð leikanna á sunnudag. Fréttatilkynning. Myndir.