Samstarf á Norðurslóðum
Forseti á fund með Alice Rogoff, stjórnanda AlaskaDispatch og Arctic Imperative Summit, og samstarfsmanni hennar, Scott Borgerson, um samstarf þeirra mörgu aðila sem efna til málþinga og funda um málefni Norðurslóða. Mikilvægt sé að koma upp árlegum sameiginlegum vettvangi til að styrkja grundvöll stefnumótunar og lýðræðislegrar þátttöku á Norðurslóðum.