Veftré Print page English

Sendiherra Þýskalands


Forseti á fund með nýjum sendiherra Þýskalands á Íslandi, hr. Thomas Hermann Meister, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um trausta samvinnu landanna en einnig ný verkefni, m.a. með tilliti til nýtingar hreinnar orku, og þróun mála á Norðurslóðum. Að fundi loknum var móttaka fyrir fulltrúa ýmissa stofnana, samtaka og fyrirtækja sem hlutdeild eiga í samvinnu Íslands og Þýskalands. Mynd.