Veftré Print page English

Tónagjöf til Akureyringa


Forseti er viðstaddur tónleika í menningarhúsinu Hofi í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrar. Þeir bera heitið Tónagjöf til Akureyringa og flutt eru ný verk sex tónskálda sem frumflutt eru af Afmæliskór Akureyrar. Það er Eyþór Ingi Jónsson, organisti við Akureyrarkirku og bæjarlistamaður Akureyrar, sem hafði frumkvæði að þessari gjöf til bæjarins.