Veftré Print page English

Golfsamband Íslands 70 ára


Forseti tekur þátt í hátíðarsamkomu í tilefni af 70 ára afmæli Golfsambands Íslands. Í ávarpi fjallaði forseti um hve vel hefði tekist að gera golf að almenningsíþrótt á Íslandi; fólk úr öllum stéttum kæmi saman á golfvöllum og íþróttin hefði eflt samstöðu í byggðarlögum allt í kringum landið. Íþróttin hefði því ríkulega skapað félagsauð og aukið skilning okkar á fjölbreytileika íslenskrar náttúru.