Jarðhitasetur
Forseti á fund með forsvarsmönnum Orkusýnar um þróun kynningar á nýtingu jarðhita en Orkusýn hefur á undanförnum misserum annast fræðslu og móttöku gesta í Hellisheiðarvirkjun og áætlað er að í ár muni um 50.000 gestir hljóta slíka kynningu þar: ferðamenn úr ýmsum heimshlutum, námsfólk, aðallega frá Evrópu, sérfræðingar og forystumenn í þjóðmálum og atvinnulífi.